Okkar þjónusta

Lögmannsstofan Jura býr yfir fjölbreyttri og víðtækri reynslu á flestum sviðum lögfræðinnar. Við veitum ráðgjöf af fagmennsku, í trúnaði og með persónulega nálgun að leiðarljósi.

Sakamál

Stofan tekur að sér verjandastörf í sakamálum. Þá hjálpar stofan við að krefjast miskabóta frá íslenska ríkinu vegna þvingunaraðgerða, s.s. handtöku, haldlagningar eða húsleitar, í kjölfar sýknu eða niðurfellingar máls.

Einkamál

Stofan veitir persónulega og faglega þjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og opinberra aðila á flestum sviðum einkamálaréttarfars.

Slysabætur

Ef þú hefur orðið fyrir slysi eða líkamstjóni metum við rétt þinn til bóta. Þú færð alltaf ókeypis viðtal þar sem sérfræðingar okkar fara yfir málið, safna nauðsynlegum gögnum og sjá um málsmeðferðina frá upphafi til loka, þar til slysabætur hafa verið greiddar.